Afríska þjóðarráðið vann í fjórða skipti 25. apríl 2009 05:30 Dansað af sigurgleði. Jacob Zuma, leiðtogi ANC og forsetaefni, tekur sporið með tónlistarfólki fyrir utan höfuðstöðvar flokksins í Jóhannesarborg.fréttablaðið/ap
Afríska þjóðarráðið (ANC), sem gnæft hefur yfir suður-afrísk stjórnmál allt frá falli aðskilnaðarstefnunnar fyrir hálfum öðrum áratug, vann fjórða stórsigur sinn í röð í þingkosningum sem fram fóru í landinu á miðvikudag. Þetta kom í ljós þegar bráðabirgðaúrslit voru birt í gær. Útlit var þó fyrir að ANC tapaði meirihlutanum á fylkisþingi Vestur-Höfða, þar sem aðalvínræktar- og ferðamennskusvæði landsins er að finna. Þetta fylgishrun má rekja til andstöðu við ANC meðal kjósenda af blönduðum kynþætti þar um slóðir; þeir skynja ANC sem flokk svartra sem mismuni fólki af öðrum kynþáttum. Samkvæmt bráðabirgðaúrslitum þegar 14,5 milljónir eða um 80 prósent greiddra atkvæða höfðu verið talin, hafði ANC fengið 66,91 prósent. Þjóðþingið kýs forseta lýðveldisins, sem tryggir hinum umdeilda leiðtoga Þjóðarráðsins, Jacob Zuma, kjör í embættið, en það á að fara fram í maí. Lýðræðisbandalagið, sem að uppistöðu til er flokkur hvítra, styrkir lítið eitt stöðu sína frá síðustu kosningum og fær nú 15,62 prósent atkvæða. Klofningsframboð úr ANC (Congress of the People) fær 7,53 prósent. Aðrir flokkar koma ekki þingmönnum að. Úrslitin sýna að Lýðræðisbandalagið fær hreinan meirihluta í Vestur-Höfðafylki. Flokkurinn hefur lagt sig fram um að höfða til íbúa í héraðinu af blönduðum uppruna, en fólk sem flokkast í þann þjóðfélagshóp er um helmingur íbúa fylkisins. Svartir eru um þrjátíu prósent og hvítir um átján prósent. Þessi hlutföll eru gerólík meðaltalinu í Suður-Afríku allri, þar sem svartir eru um áttatíu prósent íbúanna og hvítir og kynblendingar um níu prósent hvor hópur. Í síðustu kosningum árið 2004 fékk ANC 69,69 prósent atkvæða. Fylgi undir því er almennt álitið skilaboð frá kjósendum um að þeir vilji setja flokknum einhver valdmörk. Með því að fá minnst tvo þriðju hluta þingsæta er flokkurinn í aðstöðu til að koma öllum stjórnarfrumvörpum í gegnum þingið, þar á meðal jafnvel róttækustu breytingum á fjárlögum, án þess að stjórnarandstaða fái nokkuð að gert. Tveggja þriðju hluta meirihluti gefur líka vald til að ákveða breytingar á stjórnarskránni. audunn@frettabladid.is
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira