Tony Blair flæktur í hneykslið 19. júní 2009 12:39 Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. Mynd/AP
Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, er flæktur í kostnaðarhneysklið sem skekið hefur bresk stjórnmál og þjóðlíf Bretlands síðasta rúma mánuðinn. Blair mun hafa fengið endurgreiddan kostnað af þakviðgerðum á heimili sínu skömmu áður en hann lét af embætti. Kostnaðarhneykslið svokallað hefur kostað breska ráðherra embættið og valdið Brown núverandi forsætisráðherra vandræðum. Lundúnablaðið Telegraph greindi frá því í byrjun maí að þingmenn allra flokka hefðu teygt og togað reglur um endurgreiddan kostnað af opinberu fé. Bresk stjórnvöld birtu í gær lista um endurgreiðslur aftur til ársins 2004. Þar kemur fram samkvæmt Telegraph að Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands og nú sérlegur samningamaður kvartettsins svokallaða í friðarumleitununum fyrir botni Miðjarðarhafs, hefði fengið nærri 4500 pund endurgreidd vegna þakviðgerða en það jafngildir nærri milljón íslenskum krónum á gengi Seðlabankans í morgun. Þar fyrir utan hafi hann fengið ríflega fimm þúsund pund eða meira en 1,2 milljónir króna endurgreiddar vegna ýmissa annarra kostnaðarliða fyrir fjárhagsárið 2007 til 2008 þó hann hafi aðeins verið þingmaður og forsætisráðherra í þrjá mánuði á þeim tíma Fram kemur á vef BBC í dag að margir þingmenn hafi þegar endurgreitt samanlagt nærri hálfa milljón punda vegna endurgreiðslna. Ekki er vitað hvort Blair ætlar að skila fénu sem hann fékk en samkvæmt Telegraph er hann ekki á flæðiskeri staddur frá því hann hætti í stjórnmálum. Hann hafi unnið sér inn um 16 milljónir punda eða ríflega þrjá milljarða króna á þeim tíma, meðal annars fyrir fyrirlestra og ritstörf.
Mest lesið Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Innlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Algjört hrun í fálkastofninum Innlent Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Innlent Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Fleiri fréttir Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Sjá meira