Maður segist vera barn sem hvarf árið 1955 Atli Steinn Guðmundsson skrifar 19. júní 2009 08:36 John Robert Barnes. MYND/Daily News
Bandaríska alríkislögreglan FBI hefur sýnt fram á það með ítarlegum rannsóknum á erfðaefni manns nokkurs að hann er ekki ungbarn sem hvarf fyrir utan verslun á Long Island í New York árið 1955. John Robert Barnes, sem búsettur er í Kalkaska í Michigan, hélt á fund lögreglu í New York í mars á þessu ári og lýsti því yfir að hann væri enginn annar en Steven Damman sem hvarf á sínum tíma, þá tveggja ára gamall. Barnes hafði þá haft uppi á systur horfna drengsins og í sameiningu létu þau gera rannsókn á erfðaefni sínu sem sýndi að einhverjar líkur væru á að þau væru systkini. Alríkislögreglan dró þá fram sinn kennslabúnað og rannsakaði málið með allra nýjustu tækni. Sú rannsókn sýndi hins vegar svo ekki varð um villst að engar líkur væru á að Barnes og systirin gætu átt sömu móður og þar við situr. John Robert Barnes er sem sagt ekki Steven Damman. Barnið hvarf á mjög leyndardómsfullan hátt á sínum tíma. Móðir þess brá sér inn í búð og skildi drenginn eftir í barnavagni fyrir utan ásamt systur hans. Þegar móðirin kom út aftur voru bæði börnin horfin ásamt barnavagninum. Stúlkan og barnavagninn fundust nokkrum húsaröðum í burtu en drengurinn kom aldrei fram.
Mest lesið Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Innlent Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Innlent „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Erlent „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Innlent Útihátíð fyrir ungmenni gekk eins og í sögu Innlent Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Innlent Bíll konunnar sást á upptöku Innlent Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Innlent Fleiri fréttir „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Sjá meira