Tilraunakjarnorkusprenging fordæmd 26. maí 2009 04:00 Íbúar suður-kóresku höfuðborgarinnar Seoul mótmæla kjarnorkuvígvæðingartilburðum norðanmanna í gær. fréttablaðið/ap
Norður-Kóreustjórn lýsti því yfir í gær að hún hefði látið í tilraunaskyni sprengja öfluga kjarnorkusprengju neðanjarðar, mun öflugri en þá sem hún lét sprengja árið 2006. Tilraunasprenging kommúnistastjórnar í Pyongyang er ávísun á að hin alþjóðlega deila um kjarnorku- og eldflaugavígvæðingaráætlun hennar magnist um allan helming. Í tilkynningu stjórnarinnar, sem ríkisfréttastofan KCNA birti, segir að framkvæmd hafi verið ný tilraunasprenging kjarnorkusprengju neðanjarðar, „sem lið í aðgerðum til að efla kjarnorkufælingarmátt til sjálfsvarnar“. Rússneska varnarmálaráðuneytið staðfesti að kjarnorkusprenging hefði átt sér stað neðanjarðar í norðausturhluta Norður-Kóreu kl. 9.54 að staðartíma (kl. 00.54 að íslenskum tíma) í gærmorgun. Sérfræðingar ráðuneytisins giska á að afl sprengjunnar hafi verið á bilinu tíu til tuttugu kílótonn, sem er sambærilegt afli sprengjanna sem Bandaríkjaher sprengdi yfir Hiroshima og Nagasaki árið 1945. Nokkrum stundum síðar sendi norður-kóreski herinn þrjár skammdrægar eldflaugar á loft í tilraunaskyni. Samkvæmt samþykkt öryggisráðs SÞ er Norður-Kóreumönnum bannað að gera nokkrar tilraunir sem tengjast langdrægri eldflaugatækni. Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði tilraunirnar „skýlaust brot“ á samþykktum öryggisráðsins og alþjóðalögum, sem ekki væri til annars fallið en að einangra Norður-Kóreu enn frekar. Jafnvel Kínastjórn, hefðbundinn bandamaður Norður-Kóreu, sagðist „algerlega andsnúin“ þessum tilraunum, en fram til þessa hafa kínverskir ráðamenn farið mjög varlega í að gagnrýna Pyongyang-stjórnina. Það hvernig Norður-Kóreumenn bjóða stórveldum heimsins birginn eykur um allan helming á spennuna í deilunni um kjarnorkuáætlun þeirra. Á síðustu tveimur mánuðum hafa Norður-Kóreumenn skotið langdrægri tilraunaeldflaug yfir Japan, hætt þátttöku í alþjóðlegum viðræðum um kjarnorkumál og hrakið eftirlitsmenn úr landi, keyrt á ný upp kjarnorkuver sem áður stóð til að rífa, og varað við því að þeir myndu láta verða af tilraunakjarnorkusprengingum og tilraunum með fleiri langdrægar eldflaugar sem geta borið kjarnorkuvopn. audunn@frettabladid.is
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Sjá meira