Erlent

Obama útnefnir Soniu Sotomayor í Hæstarétt

Sonia Sotomayor.
Sonia Sotomayor.

Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur útnefnt Soniu Sotomayor sem nýjan dómara við Hæstarétt Bandaríkjanna. Staðfesti öldungadeild Bandaríkjaþings skipan hennar í embættið verður Sotomayor fyrsti rómansk ættaði Bandaríkjamaðurinn til að taka við sem dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna og þriðja konan.

Hún tæki þá við af hinum frjáslynda David Souter sem hefur verið hæstaréttardómri síðan 1990. Souter hættir sökum aldurs en hann verður sjötugur síðar á árinu. Sotomayor verður fimmtíu og fimm ára í næsta mánuði. Hún hefur verið dómari við áfrýjunarrétt í Bandaríkjunum síðan 1998. Hún lauk lögfræðiprófi frá Yale-háskóla og þykir frjálslynd í skoðunum líkt og Souter.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×