Erlent

Simpson áfrýjar og krefst frelsis

Ruðningskappinn og leikarinn O.J. Simpson bað Hæstarétt Nevadafylkis í Bandaríkjunum í dag að snúa við sakfellingu yfir honum fyrir vopnað rán og tilraun til mannráns. Hann krefst þess að honum verði veitt frelsi.

Simpson var sakfelldur í desember fyrir að hafa ráðist vopnaður með félaga sínum inn á hótelherbergi í Las Vegas í desember 2008. Þar ógnuðu þeir tveimur mönnum og rændu íþróttaminjagripum sem Simpson sagðist vera að endurheimta. Simson sem er 61 árs var dæmdur til 15 ára fangelsisvistar.

Simpson áfrýjaði úrskurðinum á þeim grundvelli að hann hafi ekki fengið réttláta málsmeðferð. Hann fullyrðir að margháttar mistök hafi verið gerð við vinnslu sakamálsins á hendur honum. Þá vill hann meina að sannanir gegnum honum hafi verið ófullnægjandi.

Fjórtán ár eru síðan að Simpson var sýknaður af ákærum um að hafa myrt eiginkonu sína, Nicole, og vin hennar Ronald Goldman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×