Erlent

Tengsl við táning í brennidepli

Noemi Letizia. Stúlkan í brennidepli hneykslisins, með hálsmenið sem Berlusconi gaf henni í afmælisgjöf. 
fréttablaðið/ap
Noemi Letizia. Stúlkan í brennidepli hneykslisins, með hálsmenið sem Berlusconi gaf henni í afmælisgjöf. fréttablaðið/ap

 Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur lofað að útskýra frekar fyrir þjóðinni hvernig sambandi hans er háttað við táningsstúlku sem er í brennidepli pólitísks og persónulegs hneykslismáls.

Í viðtali á CNN-sjónvarpsstöðinni í gær neitaði Berlusconi því að hafa logið til um tengsl sín við Noemi Letizia og sagðist eingöngu hafa reynt að vernda hana og einkalíf fjölskyldu hennar.

Eiginkona Berlusconis vísaði meðal annars til veru hans í átján ára afmælisveislu stúlkunnar sem ástæðu fyrir ósk sinni um skilnað. Berlusconi, sem er 72 ára, segist hafa þekkt föður Noemi lengi og hann hafi mætt í afmælið vegna þess að svo hafi viljað til að hann var staddur í Napolí þennan dag.

- aa




Fleiri fréttir

Sjá meira


×