Erlent

Farsímasmygl með leikfangaþyrlu

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Þyrlan sem beitt var við smyglið.
Þyrlan sem beitt var við smyglið.

Fjórir eru í haldi lögreglu í Sao Paulo í Brasilíu eftir að þeir voru gripnir við að reyna að smygla farsímum til félaga sinna innan múra öryggisfangelsis með fjarstýrðri leikfangaþyrlu. Fjórmenningarnir voru gripnir í bíl skammt frá fangelsinu með 14 farsíma og eitthvað af reiðufé á sér, auk þyrlunnar. Þeir voru handteknir og játaði sá yngsti þeirra, sem er 17 ára, að þeim hafi verið boðnar ríkulegar fjárhæðir tækist þeim að koma símunum til ákveðinna aðila innan fangelsisins. Menn hafa verið hugmyndaríkir við að koma símum inn í brasilísk fangelsi og hefur bæði bréfdúfum verið beitt og biblíum sem holaðar hafa verið að innan svo eitthvað sé nefnt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×