Enski boltinn

Carrick vill halda Tevez

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Carlos Tevez.
Carlos Tevez. Nordic Photos/Getty Images

Michael Carrick hvetur félaga sinn hjá Man. Utd, Carlos Tevez, til þess að vera áfram hjá félaginu þó svo Tevez hafi líklega mjög lítið um málið að segja.

Lánssamningur hans er að enda og United mun líklega eki borga uppsett verð fyrir leikmanninn sem hefur ekki staðið undir væntingum í vetur. Fréttir herma að hann muni líkast til enda hjá Real Madrid.

„Ég og við strákarnir í liðinu viljum endilega halda honum hjá félaginu enda er Carlos frábær leikmaður. Hann hefur skorað nokkur mjög mikilvæg mörk fyrir félagið síðustu ár," sagði Carrick.

„Við erum með heimsklassaleikmannahóp með heimsklassamönnum. Carlos er einn þeirra. Við viljum halda áfram sem lið og hópur og þess vegna viljum við halda Carlosi. Ákvörðunin er samt eflaust stjórans á endanum og hann veit best hvaða leið við þurfum að fara til að halda áfram á okkar braut," sagði Carrick.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×