Erlent

Hressa upp á Stonehenge

Óli Tynes skrifar
Frá Stonehenge.
Frá Stonehenge.

Bresk yfirvöld hafa ákveðið að reisa nýja gestamiðstöð við steinhringinn mikla Stonhenge og loka jafnframt vegi sem liggur þar framhjá.

Barbara Follett menningarmálaráðherra segir að Stonhenge sé mikilvægasta og þekktasta forsögulega mannvirki landsins. Því sé mikilvægt að vel sé að því búið.

Stonhenge var reist einhverntíma á tímabilinu frá 3000 til 1600 fyrir Krist. Enginn veit með vissu í hvaða tilgangi það var reist.

Það gæti hafa verið musteri, grafreitur eða stjörnudagatal. Eða allt þrennt. Eða ekkert af þessu.

Hinir risavöxnu einsteinungar vega allt að 50 tonnum. Það er varla hægt að ímynda sér þolinmæðina og erfiðleikana við að bisa þeim mörghundruð kílómetra yfir sjó og land og reisa þá svo upp á endann.

Stonehenge er á Salisbury sléttunni um 120 kílómetra vestur af Lundúnum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×