Erlent

Flugriti Yemenia-vélarinnar staðsettur

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Flugvél af gerðinni Airbus A310.
Flugvél af gerðinni Airbus A310.

Annar flugriti Airbus-vélar jemenska flugfélagsins Yemenia, sem fórst í Indlandshafi í gær með rúmlega 150 manns innanborðs, hefur verið staðsettur. Það var leitarflugvél sem nam merki frá flugritanum síðdegis í gær. Franskt skip er nú á leiðinni á staðinn þar sem til flugritans heyrðist og mun áhöfn þess reyna að ná honum upp af hafsbotni. Sextíu og sex Frakkar voru meðal farþega vélarinnar en hinir voru frá Kómoreyjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×