ESB vill draga umtalsvert úr fiskveiðum 21. apríl 2009 12:19
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins telur að draga þurfi umtalsvert úr fiskveiðum á hafsvæði ESB. Þannig verði tryggt að fiskveiðar verði sjálfbærar. Fækka þurfi skipum og bátum, draga úr fjárstuðningi til greinarinnar og herða refsingar fyrir brot. Grænbók framkvæmdastjórnarinnar um sameiginlega fiskveiðistefnu Evrópusambandsins verður birt á morgun. Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur komist yfir eintak af henni og fjallar um hana á vefsíðu sinni. Samkvæmt BBC kemur fram í grænbókinni að þrjátíu prósent fiskistofna í lögsögu ESB séu í hættu. Þrátt fyrir umtalsverðar breytingar á fiskveiðistefnunni 2002 sé enn stunduð ofveiði, fiskveiðiflotar aðildarríkjanna enn of stórir, niðurgreiðsla enn of miklar og enn of mikið veitt af undirmálsfiski. Áttatíu prósent af öllum fiskistofnum séu undir hámarks framleiðnigetu - það er mestu veiði sem hægt er að viðhalda í óákveðinn tíma. Niðurstaða framkvæmdastjórnarinnar er að hvað suma stofna varði, þar á meðal Norðursjávar þorsk, sé meirihluti fisks veiddur áður en hann kemst á hrygningaraldur. Það er mat framkvæmdastjórnar ESB að drag þurfi umtalsvert úr fiskveiðum í Atlantshafi og Norðursjó um tíma eða þar til tryggt er að stofnarnir hafa náð sér og að veiðarnar verði sjálfbærar. Það er mat framkvæmdastjórnarinnar að til lengri tíma litið muni sjómenn og sjávarútvegsfyrirtæki hagnast á þessu en eins og kerfið sé uppbyggt nú sé frekar horft til skammtímagróða. Mörg ríki hafi viðhaldið mikilli veiði á veikum stofnun af pólitískum ástæðum. Framkvæmdastjórnin leggur því til að ábyrgð á fiskveiðistjórninni verði ekki síður hjá sjómönnunum sjálfum en hjá stofnunum í Brussel og stjórnvöldum aðildarríkja og unnið verði náið með sjómönnum um leið og þeir verði hvattir til að taka mið af langtíma hagsmunum. Lagt er til að allar niðurgreiðslur til fiskveiða verði aflagðar, eftirlit verði aukið og refsingar vegna brota hertar. Einnig er lagt til að skýr greinarmunur verði gerður annars vegar á réttindum veiðiskipa í litlum samfélögum þar sem strandveiðar eru lifibrauðið og hins vegar á verksmiðjuskipum stórra sjávarútvegsfyrirtækja.
Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Sjá meira