STASI fylgdist með Michael Jackson Atli Steinn Guðmundsson skrifar 31. júlí 2009 07:27
Fáa hefði víst fáa grunað að nafn Michaels Jackson heitins væri að finna í skjölum austur þýsku leyniþjónustunnar STASI. Svo er þó. Ekkert lát er á fróðlegum upplýsingum um Michael Jackson núna eftir andlát hans. Komið er upp úr kafinu að Jackson rataði inn í skýrslur hjá austurþýsku leynilögreglunni STASI eftir að hann hélt tónleika við Brandenborgarhliðið í Berlín í júní 1988, steinsnar vestan við Berlínarmúrinn sem þá stóð enn. Yfirmenn leynilögreglunnar höfðu þungar áhyggjur af því að ungt fólk í austurhlutanum færi inn á bannsvæðið við múrinn til þess að hlusta á tónleikana. Gæti fólkið þannig orðið fyrir vestrænum áhrifum sem á þeim tíma þótti alvarlegt mál. Til að fyrirbyggja slíkt slys hugðist STASI ginna aðdáendur frá múrnum og lengst inn í hjarta Austur-Berlínar með því að sýna tónleikana á risaskjá þar, þó með tveggja mínútna seinkun á útsendingunni þannig að ritskoðarar hins opinbera gætu brugðið skjótt við og stöðvað sýninguna yrðu þeir varir við andkommúnískan áróður af einhverju tagi. Þá átti að skipta í snarheitum yfir á upptöku af eldri tónleikum sem búið væri að ritskoða. Af þessu varð þó aldrei. Einfaldara þótti að hafa her lögreglumanna við múrinn austan megin sem sæju um að dreifa þeim múg sem að múrnum kæmi og var það gert. Umfangsmikil skýrsla var gerð um málið og Jackson þar með orðinn nafn í skjalageymslum STASI.
Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Innlent Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Fleiri fréttir Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Sjá meira