Starfsgreinasambandið kallar eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. september 2009 23:26 Skúli Thoroddssen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, kallar eftir aðgerðum stjórnvalda. Mynd/ Hari.
Stöðugleikasáttmáli ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins var ekki undirritaður upp á grín, segir Skúli Thoroddssen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins í nýjum pistli á vef sambandsins. Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins leggur á það ríka áherslu að nú þurfi að koma verkefnunum af stað.Þegar á eftir áætlun „Það dugar ekki að ríkisstjórnin dragi lappirnar og að einstaka ráðherrar horfi til búskaparhátta frá miðri síðustu öld og þvælist fyrir mikilvægum nútíma framkvæmdum sem þegar eru á borðinu. Í Stöðugleikasáttmálanum undirgengst ríkisstjórnin að greiða götu þegar ákveðinna stórframkvæmda s.s. framkvæmda vegna álvers í Helguvík og Straumsvík, að hraða undirbúningsvinnu vegna áforma sem tengjast meðalstórum iðnaðarkostum eins og gagnaverum og kísilflöguframleiðslu og að engar hindranir verði í vegi slíkra framkvæmda eftir 1. nóvember n.k. Ljúka átti viðræðum ríkisstjórnar og lífeyrissjóða um að þeir fjármagni stórar framkvæmdir fyrir 1. september 2009. Sá dagur er liðinn og framkvæmdir til að stuðla að aukinni atvinnu ekki sýnilegar. Það eykur svo enn á vanda heimilanna," segir Skúli í pistlinum.Ríkisstjórnin sinnir ekki vanda heimilanna Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins bendir á að ómarkvissar og seinvirkar aðgerðir af hálfu ríkisvaldsins skili litlum sem engum árangri. Segir í pistlinum að þeim vinnubrögðum verði að breyta og það geti ríkisstjórnin hæglega gert. Vandi heimilanna vaxi hröðum skrefum og staða þeirra sem komnir eru í greiðsluvanda fari versnandi. Örvænting blasi víða við. Undanfarna mánuði hafi þessi aðkallandi vandi fengið litla athygli stjórnvalda. Það sé óásættanlegt og ekki í samræmi við Stöðugleikasáttmálann.
Mest lesið Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Erlent NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Erlent Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Erlent „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Innlent Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Veður Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Erlent Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Innlent Kalt í veðri miðað við árstíma Veður Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni Erlent „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent Fleiri fréttir Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Kjartan Guðmundsson er látinn Sjálfstæðismenn og óháðir staðfesta listann í Vogum New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Vilja fá valdið aftur Sjá meira
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent