Enski boltinn

Van Persie: Reynslan gerir gæfumuninn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Robin van Persie í leik með Arsenal.
Robin van Persie í leik með Arsenal. Nordic Photos / Getty Images

Robin van Persie hefur litlar áhyggjur af því að Arsenal nái ekki fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar í vor og tryggi sér þar með þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.

Aston Villa var í góðri stöðu fyrir fáeinum vikum en hefur átt skelfilegu gengi að fagna að undanförnu. Arsenal hefur nýtt sér það og er komið með þriggja stiga forystu á Aston Villa í baráttu liðanna um fjórða sætið.

„Við erum enn með í enska bikarnum sem og Meistaradeildinni. Við erum í fjórða sæti deildarinnar núna og ég myndi því segja að útlitið sé nokkuð gott."

„Við getum án nokkurs vafa haldið fjórða sætinu. Aston Villa hefur staðið sig vel á tímabilinu en ég tel að við séum betur í stakk búnir til að takast á við pressuna á lokaspretti tímabilsins. Það er ekkert öruggt enn en ég er nokkuð bjartsýnn."

Van Persie gaf meira að segja í skyn að félagið eigi möguleika á að hrifsa þriðja sæti deildarinnar af Chelsea.

„Ég er nokkuð jákvæður að eðlisfari. Við erum sex stigum á eftir Chelsea og eigum eftir að spila á móti þeim. Það er allt hægt í fótbolta."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×