Ísraelar gerðu árás á Súdan 27. mars 2009 12:27 Frá Gazaströndinni þegar innsrás Ísraela stóð sem hæst. MYND/AP
Ísraelskar orrustuþotur gerðu loftárás á bílalest í Afríkuríkinu Súdan í janúar síðastliðnum til að stöðva vopnaflutninga til Gaza strandarinnar. Bandaríska blaðið New York Times hefur eftir ónafngreindum embættismönnum að loftárásin hafi verið gerð þegar innrás Ísraela á Gaza ströndina stóð sem hæst í janúar. Fregnir hafi borist af því að lest flutningabíla væri á ferð í Súdan með vopn sem ættu að fara til Gaza fyrir milligöngu Írana. Ísraelar hafi sent orrustuþotur til þess að eyða bílalestinni. Sagt er að að minnsta kosti þrjátíu manns hafi farist í árásinni Aðeins einn maður komst af og eftir honum er haft að tvær orrustuþotur hafi flogið yfir bílalestina. Þær hafi svo snúið við og gert á hana árás. Til þess að gera loftárás í Súdan hafa ísraelsku þoturnar þurft að fljúga nokkur hundruð kílómetra suður eftir Rauða hafinu á milli Egyptalands og Saudi Arabíu og sveigja svo til hægri inn í Súdan. Það er ekkert tiltökumál fyrir Ísraelska flugherinn sem hefur oft farið í lengri og flóknari árásarferðir. Ehud Olmert, fráfarandi forsætisráðherra Ísraels vildi lítið tjá sig um þessar fréttir. Hann sagði að Ísrael gripi til aðgerða hvar sem er og hvenær sem þyrfti að verja landið. Óþarfi væri að fara út í smáatriði, þeir sem þyrftu að vita vissu það sem þeir þyrftu að vita.
Mest lesið Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Innlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Innlent Íslendingur lést vegna hitaslags Innlent „Það hefði auðvitað verið betra“ Innlent Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Innlent Fleiri fréttir Ráðgjafi Farage sagði Bretland eiga að endurheimta nýlendurnar Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Sjá meira