Rússar njósna um þýsk orkufyrirtæki Atli Steinn Guðmundsson skrifar 22. júní 2009 07:35 Wolfang Schäuble.
Rússneskir njósnarar beina nú augum sínum að þýskum orkufyrirtækjum í leit að aðferðum til að auka afkastagetu sinna eigin fyrirtækja. Burkhard Even, yfirmaður gagnnjósnadeildar þýsku leyniþjónustunnar, lét þýska blaðinu Die Welt þessar upplýsingar í té í viðtali sem blaðið birti í gær. Hann sagði rússneska njósnara liggja yfir orkufyrirtækjum landsins auk þess að fylgjast grannt með þýska hagkerfinu, þróun þess og stjórnun. Þýski innanríkisráðherrann Wolfang Schäuble lét þess einnig getið í skýrslu ráðuneytisins í maí að Rússar og Kínverjar stunduðu njósnir í þýskum fyrirtækjum auk þess sem gerðar hefðu verið árásir á fyrirtækin gegnum Netið. Even mæltist til þess í viðtali Die Welt að fyrirtæki hertu öryggisreglur sínar og væru á varðbergi gagnvart iðnaðarnjósnum jafnt sem tölvuárásum. Hann segir það augljóst að ætlun Rússanna sé að afla sér upplýsinga frá þýskum fyrirtækjum sem nýtist þeim við að styrkja sín eigin fyrirtæki og auka afkastagetu þeirra, einkum í orkugeiranum. Mikhail Fradkov, sem stjórnar alþjóðadeild rússnesku leyniþjónustunnar, er hagfræðingur og sagður sérstaklega skæður en hann var skipaður í embætti af Vladimir Pútín sem þá var forseti Rússlands. Pútín njósnaði fyrir KGB á dögum kalda stríðsins.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira