Fimmtungur fallinna á Gaza eru börn 5. janúar 2009 12:41 Talið er að um fimmtungur fórnarlamba árásanna á Gaza séu börn. MYND/AP
Talið er að rúmlega fimmtungur þeirra ríflega fimm hundruð Palestínumanna sem hafa fallið í árásum Ísarelsmanna á Gaza séu börn. Aðalsjúkrahúisð í Gaza-borg hefur ekki lengur undan að taka við særðum og margir deyja áður en þeir komast undir læknis hendur. Norski læknirinn Erik Fosse starfars sem sjálfboðaliði á Shifa sjúkrahúsinu í Gaza-borg segir í viðtali við fréttavef CNN að af þeim rúmlega fimm hundruð Palestínumönnum sem hafi fallið séu yfir fimmtungur börn sem þýði að þau séu fleiri en hundrað sem hafi týnt lífi. Fosse segir föllnum fjölga ört eftir því sem bardagar ísraelskra hermanna og herskárra Palestínumanna færist meira inn í borgina. Nærri þrjú þúsund Palestínumenn hafa særst. Shifa er stærsta sjúkrahúsið í Gaza-borg og segir Fosse það ekki lengur hafa undan að taka við særðum Palestínumönnum. Margir þeirra deyji áður en læknir geti hlúð að þeim. Aðgerðir séu gerðar á göngum sjúkarhússins með misgóðum árangri. Innrás Ísraela á Gaza hófst seint á laugardaginn eftir loftárásir sem stóðu í um viku. Ísraelar ætla sér að komast milli bols og höfuðs á Hamas-samtökunum sem stjórna Gaza. Einnig vilja þeir stöðva flugskeytaárásir herskárra Palestínumanna á Suður-Ísrael frá Gaza sem kostað hafa fjóra Ísraela lífið frá því loftárásir á Gaza hófust. Ayman Daragmeh, talsmaður Hamas í Ramalla, segir ekki hægt að kalla aðgerðir Ísraela stríð. Miklu nær sé að lýsa þessu sem helför. Daragmeh segir að þeir sem hafi hertekið landsvæði og haldið Gaza í herkví í á annað ár ráðist nú gegn fólkinu sem þeir hafi umkringt og einangrað. Ísraelar leggja hins vegar áfram áherslu á að almennir Gaza-borgarar séu ekki skotmörk þeirra og sendu hjálpargöng til svæðisins í morgun.
Mest lesið Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Innlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Erlent Fleiri fréttir Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Sjá meira