Enski boltinn

Southgate nýtur stuðnings stjórnarinnar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gareth Southgate, knattspyrnustjóri Middlesbrough.
Gareth Southgate, knattspyrnustjóri Middlesbrough. Nordic Photos / Getty Images

Stjórn Middlesbrough hefur ítrekað að Gareth Southgate knattspyrnu nýtur stuðnings sinnar þó svo að staða liðsins í deildinni sé ekki góð.

Boro hefur unnið aðeins einn af síðustu átján leikjum sínu í deildinni og eru fjórum stigum frá öruggu sæti í deildinni.

„Ég hef rætt við marga stuðningsmenn á síðustu vikum og hef oft verið spurður um Gareth Southgate. En það er engin töfralausn fólgin í því að reka hann," sagði Steve Gibson, stjórnarformaður Boro.

„Það hafa allir sínar skoðanir á knattspyrnunni og ég skil vel að stuðningsmenn séu pirraðir. Ég tek skoðanir stuðningsmannanna til greina en sé ekki hvernig það ætti að hjálpa til að reka Gareth nú."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×