Erlent

Eignaðist 18 hvolpa í einu goti

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Stolt móðir og afkvæmin 18.
Stolt móðir og afkvæmin 18. MYND/PA

Bresk dalmatíutík eignaðist 18 hvolpa í einu goti á Þorláksmessu en afar sjaldgæft er að þetta kyn eignist fleiri en átta eða níu hvolpa í goti.

Framkvæma þurfti keisaraskurð á móðurinni til að koma öllum afkvæmunum heilum á húfi í heiminn og sagði dýralæknirinn að þótt aðgerðin sjálf hefði verið einföld hefði eftirleikurinn ekki verið neitt grín. Hann hefði þurft sex hjúkrunarkonur til að lífga hvolpana við og sinna þeim fyrstu augnablikin eftir fæðinguna.

Blátt blóð rennur um æðar nýburanna en móðir þeirra er undan einum leikaranna í kvikmyndinni 102 dalmatíuhundar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×