Erlent

Ráðist á lögreglustöð í Pakistan

Frá Pakistan.
Frá Pakistan. Mynd/AP
Undanfarið hefur fjöldi fólks farist í mannskæðum sprengjuárásum ódæðismanna í Pakistan. Nú síðast í dag var lögreglustöð í höfuðborginni, Islamabad, skotmarkið. Einn lögreglumaður lést í árásinni og þá eru að minnsta kosti þrír særðir eftir árásina.

Talibanar hafa framið hvert ódæðið á eftir öðru að undanförnu vegna hernaðar Pakistana gegn talibönum í Swat-dalnum við landamæri Pakistans og Afganistans.

Í gær létust á fjórða tug manna og mikill fjöldi særðist þegar

sjálfsvígssprengjumaður sprengdi sig í loft upp í mosku í norðvesturhluta Pakistans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×