Ráðherrar í stjórn Browns segja af sér 3. júní 2009 07:00 Jacqui Smith kemur af ríkisstjórnarfundi í Downing-stræti 10 í gær. Hún er sögð ætla að segja af sér. fréttablaðið/afp
Breski innanríkisráðherrann Jacqui Smith ætlar að segja af sér embætti á næstu dögum, að því er breskir fjölmiðlar greindu frá í gær. Einnig er greint frá því að forsætisráðherrann Gordon Brown ætli sér að gera ýmsar breytingar á ríkisstjórn sinni eftir kosningar til Evrópuþingsins, sem verða á fimmtudag. Þá ætla Tom Watson, aðstoðarráðherra og þingmaður, og Beverley Hughes, ráðherra fjölskyldumála, að láta af störfum. Nokkrir þingmenn Verkamannaflokksins hafa tilkynnt að þeir muni hætta í næstu kosningum. Jacqui Smith er meðal þeirra bresku þingmanna og ráðherra sem hafa fengið á sig mikla gagnrýni fyrir að hafa fengið endurgreiddan ýmsan persónulegan kostnað frá hinu opinbera. Þar á meðal er kostnaður við leigu á tveimur klámmyndum sem eiginmaður hennar tók á leigu. Þá skráði hún heimili systur sinnar í London sem aðalheimili sitt og fékk þannig styrki fyrir að halda tvö heimili. Smith hefur verið þingmaður Verkamannaflokksins frá árinu 1997 og varð fyrst kvenna til að verða innanríkisráðherra árið 2007. Samkvæmt fréttum fjölmiðla hyggst Smith ekki hætta þingmennsku heldur berjast fyrir áframhaldandi sæti sínu á þingi fyrir Redditch-hérað. Auk þessara þriggja ráðherra er einnig talið líklegt að Alistair Darling verði fluttur úr fjármálaráðuneytinu, en hann hefur einnig fengið á sig gagnrýni vegna endurgreiðslna frá ríkinu. Sömu sögu má segja af samgönguráðherranum Geoff Hoon, en báðir ráðherrarnir hafa lofað að borga upphæðirnar til baka. Talsmaður Gordons Brown vildi ekki tjá sig um afsagnirnar í gær. Þrýstingur á að hann boði til kosninga hefur aukist til muna undanfarið, en hann verður að halda kosningar fyrir júní á næsta ári. Stjórnmálafræðingar spá því að hundruð stjórnmálamanna muni missa vinnuna í kosningunum vegna hneykslismálanna. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira