Ráðuneytismenn fá námskeið í uppistandi Atli Steinn Guðmundsson skrifar 3. júní 2009 07:36 Japanskir skrifstofumenn.
Líf japanskra embættismanna er allt annað en hlægilegt þessa dagana og liggur stjórnarandstaðan þeim meðal annars á hálsi fyrir að sóa fé skattborgaranna ráðleysislega á krepputímum. Það kemur þó ekki í veg fyrir að ráðuneyti samgöngumála í Japan geri sitt til að létta mönnum lífið á tímum erfiðleika og býður ráðuneytið nú starfsfólki sínu upp á námskeið í uppistandi, það er að segja þeirri list að flytja gamanmál á sviði og hafa þannig ofan af fyrir meðbræðrum sínum og -systrum. Það eru þaulvanir skemmtikraftar sem annast kennsluna og hafa rúmlega 100 starfsmenn ráðuneytisins slegið til og skellt sér á námskeiðið. Þetta er þó ekki allt gert eingöngu með glens og grín í huga heldur er hugmyndin meðal annars sú að auka færni fólksins til að hafa samskipti við almenning en japanskir embættismenn verða seint taldir meðal hressasta fólks í heimi. Þessu vill Atsuya Kawada, starfsmannastjóri ráðuneytisins, breyta og segir þessa nálgun mun heppilegri en þá að senda fólkið á langa og leiðinlega fyrirlestra um opinbera stjórnsýslu, vinnudagurinn sé nú þegar nógu langur og nú þurfi japönsk möppudýr á skopskyni að halda í stað skrifræðis.
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Innlent Ted Turner er látinn Erlent Fleiri fréttir Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Sjá meira