Erlent

Þurfum sameiginlegan grundvöll til að rökræða

Obama í einkennisklæðnaði skólans.
Obama í einkennisklæðnaði skólans.

Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama hélt ræðu í kaþólska skólanum Notre Dame í dag en andstæðinga fóstureyðinga og stofnfrumurannsókna umkringdu skólann og mótmæltu veru hans þar.

Obama var boðið að tala í útskrift skólans auk þess sem honum var veitt heiðursgráða.

Í ræðu sinni sagði hann að andstæðingar fóstureyðinga og þeir sem væru henni fylgjandi, myndu aldrei verða sammála. En hann vonaðist til þess að þessir tveir hópar gætu fundið sameiginlegan grundvöll til þess að rökræða málið.

Á meðan hann hélt ræðu sína reyndu harðir andstæðingar fóstureyðingar að trufla hann. Í eitt skiptið reyndi mótmælandi að þagga niður í gestum þegar þeir hlógu að ræðu Obama.

Alls var fjórum mótmælendum vísað út af lóð skólans, sumir voru nemar.

Fyrir utan skólalóðina stóðu mótmælendur vopnaðir myndum af litlum börnum og ýmsum trúarlegum tilvísunum.

Rök andstæðinga fóstureyðinga voru einfaldlega þau að Obama væri á móti lífinu, þar af leiðandi á móti kaþólikkum og því ætti hann ekki að halda ræðu á fundinum.

Hörðustu kaþólikkunum sveið þó helst undan því að gestirnir sem hlýddu á orð Obama voru lögfræðinemar. Þar með væri verið að grafa undan lögum sem banna fóstureyðingar.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×