Erlent

Fleiri lík finnast

Frá leitinn af frönsku farþegaflugvélinni sem fórst fyrir rúmri viku.
Frá leitinn af frönsku farþegaflugvélinni sem fórst fyrir rúmri viku. Mynd/AP
Brasilíski flugherinn fann í dag lík þriggja einstaklinga sem fórust með farþegaþotu Air France aðfaranótt mánudagsins síðasta. Í gær fundust lík tveggja manna ásamt braki úr vélinni og persónulegum munum.

228 fórust í slysinu en flugvélin var á leiðinni frá Rio de Janeiro í Brasilíu til Parísar í Frakklandi. Einn íslenskur ríkisborgari var um borð.

Leitarskilyrði á svæðinu hafa verið afar erfið undanfarna daga vegna slæms veðurs en leitinni verður haldið áfram.

Líkin hafa fundist á svæði um 800 kílómetrum norðaustur af Brasilíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×