Þriðji síðasti breski eftirlifandi fyrri heimsstyrjaldar fallinn Atli Steinn Guðmundsson skrifar 13. janúar 2009 07:55 Bill Stone, hlaðinn orðum og heiðursmerkjum. MYND/HMSHOOD.com
Einn þriggja eftirlifandi breskra hermanna sem börðust í fyrri heimsstyrjöldinni lést í gær, 108 ára að aldri. Bill Stone var fæddur í Devon árið 1900 og voru þau fjórtán systkinin. Hann gekk til liðs við breska sjóherinn 16 ára gamall og var þegar munstraður á orrustubeitiskipið HMS Tiger. Síðar var Stone fluttur yfir á herskipið Hood, flaggskip breska flotans, sem mætti örlögum sínum örskammt undan ströndum Íslands í maí 1941 þegar þýski bryndrekinn Bismarck sprengdi það í tætlur með 1.418 manna áhöfn. Þrír komust af. Stone var þó ekki á Hood þegar þetta gerðist heldur var hann kominn á HMS Salamander og tók þar meðal annars þátt í að ferja her bandamanna frá Dunkerque í Frakklandi vorið 1940 þar sem þýski herinn hafði króað á fjórða hundrað þúsund hermenn af. Stone annaðist meðal annars hárskurð í sinni herdeild og sagt er að hann hafi eitt sinn snyrt kollinn á bróður franska einræðisherrans Francisco Franco sem hann bjargaði úr flugvélarflaki. Að Stone gengnum eru tvær stríðshetjur úr fyrri heimsstyrjöldinni eftir í Bretlandi og eru þeir herramenn 110 og 112 ára gamlir.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira