Árás á flóttamannahjálp SÞ: Vorum að verja okkur 15. janúar 2009 19:06
Forsætisráðherra Ísraels segir höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í Gaza verið notaðar til árása á ísraelska hermenn. Þeir hafi einfaldlega verið að svara fyrir sig þegar þeir hafi gert árás á þær í dag. Sameinuðu þjóðirnar vísa þessu á bug og hefur flóttamannahjálp samtakanna hætt störfum á Gaza um stundarsakir. Ísraelar vörpuðu sprengjum og skutu á byggingar sem voru hluti af húsaþyrpingu Sameinuðu þjóðanna þar sem voru birgðageymslur, þjónusta flóttamannahjálpar samtakanna fyrir Palestínumenn á Gaza, skóli og skrifstofur starfsmanna. Mikill svartur reykur lagðist yfir svæðið. Allt kapp var lagt á að slökkva eldinn. Óttast var um eiturgufur frá reyknum þar sem fulltrúar Sameinuðu þjóðanna sögðu sprengjur og skotfæri ísraela sum húðuð hvítum fosfór en notkun hans er mjög takmörkuð samkvæmt alþjóðalögum. Fólk hljóp skelfinu lostið úr húsunum en um átta hundruð Palestínumenn höfðu leitað skjóls í húsunum. Þrír starfsmenn Sameinuðu þjóðanna særðust í árásinni. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, var í Ísrael þegar hún var gerð. Framkvæmdastjórinn fordæmi árásina í samtali við Ehud Barak, varnarmálaráðherra og Ehud Olmert, forsætisráðherra, og krafðist ítarlegarlega skýringa. Síðan átti framkvæmdastjórinn fund með Olmert þar sem hann sagðist harma árásina en skotið hafi verið á ísraelska hermenn frá húsaþyrpingunni. Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna hafa vísað þessu á bug. ,,Þeir höfðu staðsetningar hin okkar. þeir vissu að hundruð óbreyttra borgara væru í búðunum," sagði Chris Gunness, talsmaður fótamannahjálpar SÞ á Gaza. Árásin í dag var hluti af harðri sókn Ísraelshers inn í Gazaborg í dag. Bardagar þar munu með þeim hörðust sem orðið hafa frá því árásir Ísraela hófust. Á meðan er rætt um mögulegt vopnahlé í Egyptalandi þangað sem helsti samningamaður Ísraela er kominn.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira