Steve Jobs í hálfs árs veikindaleyfi Atli Steinn Guðmundsson skrifar 15. janúar 2009 07:36 MYND/AP/Paul Sakuma
Steve Jobs, forstjóri hugbúnaðarrisans Apple, er kominn í veikindaleyfi til júníloka en heilsubrestur hans virðist alvarlegri en talið var í fyrstu. Hún má vera skæð sóttin sem teygir anga sína alla leið inn í kauphallir heimsins en hlutabréf í Apple féllu um ein 9,8 prósent þegar tilkynnt var um veikindaleyfi forstjórans. Sennilega eru áhyggjur fjárfesta ekki rökleysa með öllu, Jobs lifði af krabbamein í brisi á dögunum og hefur verið undir ofurpressu í sókn Apple síðustu misseri, tók þar nýi iPhone-síminn sinn toll auk annarra tækninýjunga sem eiga í harðri baráttu við samkeppnisaðila á borð við Samsung, LG og Nokia. Aðdáendur Apple rak í rogastans þegar í ljós kom að markaðsstjóri Apple flutti ávarp á tæknisýningu fyrirtækisins í stað Steve Jobs en ávarp hans á sýningunni hefur gengið næst helgidómi síðustu ár. Tímasetning veikindanna þykir afar óheppileg fyrir Apple en fyrstu dagar ársins fóru nánast alfarið í að sannfæra fjárfesta um að Jobs væri við hestaheilsu þrátt fyrir áleitinn orðróm um annað. Spyrjum að leikslokum en ljóst er að rekstrarstjóri Apple, Tim Cook, mun leysa Jobs af hólmi þar til honum vex ásmegin á ný.
Mest lesið Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Innlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Algjört hrun í fálkastofninum Innlent Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Nýi brennsluofn göngugarpsins mættur á Sólheima Innlent Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Fleiri fréttir Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Sjá meira