Verkamannaflokkurinn sakaður um að mergsjúga ökumenn Atli Steinn Guðmundsson skrifar 5. maí 2009 08:08 MYND/Tim Graham/Getty Images
Ríkissjóður Bretlands fitnar um ein 250.000 pund á dag, jafnvirði rúmlega 47 milljóna króna, eingöngu af sektum sem lagðar eru á ökumenn landsins fyrir að aka yfir löglegum hámarkshraða. David Ruffley, skuggaráðherra Íhaldsflokksins í löggæslumálum, segir tvær hraðasektir hafa litið dagsins ljós hverja mínútu í heilan áratug. Hann sakar Verkamannaflokkinn um að hafa sett sér það markmið að hala að minnsta kosti 88 milljónir punda inn í ríkiskassann á ári með hraðasektum og bendir á fjölgun hraðamyndavéla við breska vegi undanfarið. Ruffley segir Verkamannaflokkinn líta á ökumenn sem einhvers konar mjólkurkýr fyrir ríkið og hjá sumum lögregluembættum hafi fjöldi sekta þrettánfaldast. Ekki vill Ruffley þó meina að allt það fé sem þarna verður til skili sér til umferðarmála. Það sé eitt að fjölga hraðamyndavélum en á meðan geri lögregla lítið sem ekkert í því að reyna að stemma stigu við ótryggðum ökutækjum í umferðinni en nóg sé af þeim. Von er á sex tegundum af nýjum hraðamyndavélum við breska vegi og eru Bretar þó þegar nærri heimsmetinu í notkun eftirlitsmyndavéla.
Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Innlent Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Erlent Fleiri fréttir Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sjá meira