Drykkja kínverskra skrifstofumanna aldrei meiri Atli Steinn Guðmundsson skrifar 20. júlí 2009 08:45 Kínverji þenur raddböndin í karaoke sem er vinsælt tómstundagaman þegar menn fá sér neðan í því í austrinu.
Áfengisdrykkja telst hreinlega hluti af starfi margra skrifstofumanna í Alþýðulýðveldinu Kína með tilheyrandi kostnaði fyrir hið opinbera auk annarra vandræða. Hjá mörgum embættismönnum þykja það sjálfsagðir mannasiðir að veita áfengi á hvers kyns fundum og samkomum þar sem hátt settir aðilar koma saman og er þá ekkert til sparað og veigarnar hafðar vel ríflegar. Li Chengyan, prófessor í félagsfræði við háskólann í Peking, segir það munu verða mjög erfitt að breyta þessum rótgróna sið og til þess muni hreinlega þurfa lagasetningu. Kínverjar eru heldur engir aukvisar þegar kemur að skrifstofudrykkjum og láta ekki sitt eftir liggja. Stutt er síðan yfirmaður hjá hinu opinbera lést úr áfengiseitrun eftir stíf fundahöld á karaokebar nokkrum og var hans minnst með þeim orðum að hann hefði dáið með sæmd og það við skyldustörf. Kostnaðurinn við þessa lifnaðarhætti opinberra starfsmanna er talinn nema sem samsvarar um 9.300 milljörðum íslenskra króna og er engan bilbug að finna á mönnum. Einn embættismaður lét kínverskt dagblað hafa það eftir sér að það væri hreinlega til skammar ef hann gæti ekki hellt gesti sína blindfulla. Hann sagði hvorki sjálfan sig né gestina vilja drekka í vinnunni en hefðin væri svo sterk að það væri engin leið fyrir þá að eiga viðskipti öðruvísi.
Mest lesið Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Erlent „Varð að martröð“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Erlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Erlent Fleiri fréttir Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Einn í lífshættu eftir að bíl var ekið inn í þvögu Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Farage sextánfaldar sætin á sveitarstjórnarstiginu Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Sjá meira