Stakk á annan tug ungbarna 24. janúar 2009 02:00
Geðbilaður maður vopnaður hnífi óð inn á barnadagheimili í flæmskum bæ í gær og stakk þar alla sem á vegi hans urðu. Tvö ungbörn dóu og ein fóstra. Tíu börn til viðbótar liggja mismikið særð á sjúkrahúsi. Meiðsli sumra þeirra kváðu vera alvarleg. Christian Du Four, saksóknari í umdæminu sem dagheimilið Fabeltjesland í bænum Dendermonde tilheyrir, segir að í ringulreiðinni sem berserksgangur hans olli gekk árásarmaðurinn út, settist upp á reiðhjól sitt og hélt sína leið. Hann var handtekinn í nærliggjandi matvöruverslun skömmu síðar. „Við erum öll í algeru áfalli," sagði Leene Du Bois, talsmaður fylkisstjórnar Flandurs. „Enginn hefði getað ímyndað sér að nokkur maður væri fær um að gera annað eins. Við erum öll harmi slegin." Hún bætti við að árásarmaðurinn hefði engin tengsl við dagheimilið. Samkvæmt upplýsingum fjölmiðla er maðurinn geðsjúkur. Bæjaryfirvöld opnuðu áfallahjálparmiðstöð þar sem fórnarlömbum árásarinnar og vitnum að henni bauðst sálfræðiaðstoð. - aa
Mest lesið Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Erlent Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Erlent Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Erlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Dvalarleyfiskerfið „handónýtt“: Erlent verkafólk leiti í vændi til að ná endum saman Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Sjá meira