Erlent

Sömdu um fækkun kjarnorkuvopna

Bandaríkjanna og Rússlands í Kreml Barack Obama gekk á fund Dmitrí Medvedev í gær til að koma samskiptum ríkjanna í gang á ný.fréttablaðið/AP
Bandaríkjanna og Rússlands í Kreml Barack Obama gekk á fund Dmitrí Medvedev í gær til að koma samskiptum ríkjanna í gang á ný.fréttablaðið/AP

Að minnsta kosti 156 manns biðu bana og yfir 800 særðust á sunnudag í harðvítugum átökum, sem brutust út í kjölfar mótmælasamkomu í Urumqi, höfuðborg Xinjiang-héraðs vestast í Kína.

„Við verðum að sýna gott fordæmi, til þess erum við hingað komnir,“ sagði Obama í glæsisal Kremlar í Moskvu, þar sem þeir forsetarnir svöruðu spurningum blaðamanna.

„Medvedev forseti og ég erum staðráðnir í að segja skilið við tortryggni og fjandskap fortíðar­innar,“ sagði Obama enn fremur.

Bandaríkin og Rússland eiga samanlagt meira en níutíu prósent af kjarnorkuvopnum heimsins. Samkvæmt núgildandi samkomulagi, sem rennur út í desember, er báðum ríkjunum heimilt að eiga að hámarki 2.200 sprengjur og 1.600 skotpalla á hjólum.

Í bráðabirgðasamkomulaginu felst að bæði ríkin fækki kjarnorkusprengjum sínum hvort um sig niður í 1.500 til 1.675, og skotpöllum á hjólum verði fækkað í 500 til 1.100. Medvedev sagði þetta „sanngjarna málamiðlun“.

Þeir samþykktu einnig að hefja á ný hernaðarsamstarf landanna, sem var lagt af eftir að Rússar réðust inn í Georgíu fyrir tæpu ári, auk þess sem samkomulag náðist um ýmis önnur mál, sem sum hver hafa verið deilumál milli ríkjanna.

Meðal annars lofaði Obama því að endurskoðun á áformum um eldflaugavarnir, sem fyrri Bandaríkjastjórn ákvað að setja upp í Póllandi og Úkraínu, yrði flýtt og henni lokið fyrir haustið.

Obama neitaði að fara út í vangaveltur um það hver færi í raun með völdin í Rússlandi, Medvedev forseti eða Vladimír Pútín forsætisráðherra, sem áður var forseti.

„Minn skilningur er sá að Medvedev forseti sé forsetinn og Pútín forsætisráðherra sé forsætisráðherrann,“ var það eina sem Obama hafði um þau mál að segja.

Athygli vakti að stuttu eftir að blaðamannafundur þeirra hófst í gær var sjónvarpsútsending frá honum rofin en í þess stað sýnt frá fótboltaleik. Blaðamannafundinn átti síðan að sýna síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×