Erlent

Ætlar að gera aðra tilraun

Þessi maður ætlaði ekki að gefa sig þegar herinn réðst til atlögu gegn stuðningsfólki Zelaya á flugvellinum í Hondúras.
fréttablaðið/AP
Þessi maður ætlaði ekki að gefa sig þegar herinn réðst til atlögu gegn stuðningsfólki Zelaya á flugvellinum í Hondúras. fréttablaðið/AP

Lokað var á alla flugumferð á aðalflugvellinum í Tegucigalpa, höfuðborg Hondúras, í gær. Kvöldið áður höfðu stjórnvöld meinað lendingu flugvélar með Manuel Zelaya, hinum brottrekna forseta landsins, innanborðs.

Mikil spenna er í landinu og fyrsta dauðsfallið varð í fyrrakvöld þegar einn stuðningsmanna forsetans lét lífið í átökum við hermenn. Herinn beitti táragasi og skaut viðvörunarskotum. Tugir manna slösuðust.

„Ég skora á hersveitir Hondúras að leggja niður vopn,“ sagði Zelaya í El Salvador í gær, en þangað hélt hann eftir árangurslausa tilraun til að lenda í Hondúras. Hæstiréttur og þing landsins ráku forsetann fyrir rúmri viku og saka hann um tugi lögbrota. Ekkert ríki hefur hins vegar viðurkennt þessa aðgerð. Í staðinn fyrir að draga hann fyrir dómstóla eða bíða kosninga tókustjórnvöld þá ákvörðun að beita hernum til að vísa honum úr landi.

Þúsundir stuðningsmanna Zelaya biðu á flugvellinum í fyrradag þegar hann reyndi að snúa aftur. Hann sagðist í gær ætla að gera aðra tilraun.

Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti stjórnvöld til að hlífa almennum borgurum, sem ættu rétt til að tjá skoðanir sínar án þess að sæta hótunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×