Raðmorðinginn í Suður-Karólínu skotinn til bana Atli Steinn Guðmundsson skrifar 7. júlí 2009 08:15 Teikning listamanns lögreglunnar í Cherokee-sýslu af manni sem vitni lýstu og sögðust hafa séð nálægt vettvangi eins morðanna. Verulegar líkur þykja á að maðurinn sem lögregla skaut í gær sé raðmorðinginn sem herjað hefur á Gaffney í tíu daga. MYND/Lögreglan í Cherokee-sýslu/CNN
Allar líkur eru taldar á því að maður, sem lögregla í Suður-Karólínu skaut til bana í gær, sé raðmorðinginn sem leikið hefur þar lausum hala síðustu tíu daga. Rannsókn á skotvopni, sem hinn 41 árs gamli Patrick Tracy Burris var með á sér þegar lögregla skaut hann til bana í gær, kemur heim og saman við það vopn sem beitt var þegar fimm manneskjur voru skotnar til bana í Gaffney í Suður-Karólínu frá 27. júní til loka síðustu viku. Þá passaði lýsing á bíl sem hann ók við bíl sem vitni höfðu séð nálægt vettvangi sumra morðanna. „Við teljum að morðinginn sé ekki á götum bæjarins lengur," sagði Reggie Lloyd lögreglustjóri í samtali við CNN. Lögreglumenn í bænum Dallas í Suður-Karólínu brugðust við tilkynningu um innbrot í gærmorgun. Þeir fundu Burris á staðnum og þegar hann gerði grein fyrir sér kom í ljós að handtökuskipun hafði verið gefin út til höfuðs honum vegna skilorðsbrots í Norður-Karólínu. Hann dró upp byssu þegar lögreglumenn hugðust handtaka hann og skaut annan þeirra í fótinn. Þeir skutu hann þá samstundis til bana. Í ljós kom að sakaskrá Burris spannar 25 blaðsíður og er þar að finna nánast alla flóruna, rán, innbrot, fölsun, ofbeldisglæpi og önnur brot í þó nokkrum ríkjum. Menn spyrja sig nú hvers vegna þessi maður hafi fengið reynslulausn úr fangelsi í apríl en hann hafði þá setið inni í átta ár.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira