Erlent

Hvað á að gera við Norður-Kóreumenn?

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Suðurkóreskir hermenn fylgjast áhyggjufullir með nágrönnunum í norðri gegnum sjónauka.
Suðurkóreskir hermenn fylgjast áhyggjufullir með nágrönnunum í norðri gegnum sjónauka. MYND/AFP/Getty Images

Bandarísk sendinefnd er nú á leið til Asíu til að ráðfæra sig við nokkra þjóðarleiðtoga þar, um hvað skuli eiginlega gera í málefnum Norður-Kóreumanna sem hafa allt á hornum sér þessa dagana og hóta Suður-Kóreumönnum og fleirum öllu illu. Nefndin fer til Peking, Seoul og Moskvu til skrafs og ráðagerða og í framhaldinu er búist við að Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, taki ákvörðun um framhaldið og hvernig best sé að standa að viðræðum við stríðsherrana í norðrinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×