Erlent

Fjögur börn sögð hafa farist

Miðhluti þessarar þjóðvegarbrúar hrundi í skjálftanum. fréttablaðið/ap
Miðhluti þessarar þjóðvegarbrúar hrundi í skjálftanum. fréttablaðið/ap

 Minnst fjórir létust í Hondúras í gær þegar sterkur jarðskjálfti, 7,1 á Richterkvarða, reið yfir undan ströndum Mið-Ameríkulandsins. Hús hrundu bæði í Hondúras og nágrannalandinu Belís og fólk allt til höfuðborgarinnar í Gvatemala flúði híbýli sín á náttfötunum.

Jarðskjálftinn stóð í hálfa mínútu og í fyrstu var óttast að flóðbylgja kynni að vera á leið að ströndum Hondúras, Belís og Gvatemala. Sú hætta leið fljótlega hjá. Rafmagn fór af á stórum svæðum allt að landamærunum við Mexíkó. - sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×