Erlent

Segja Bandaríkjamenn standa að baki sprengjuárás í Íran

MYND/AP
Írönsk yfirvöld segja að Bandaríkjamenn hafi staðið að baki sprengjuárás í mosku í suð-austurhluta Írans í gærkvöldi. Minnst nítján féllu í árásinni og um sextíu særðust.

Sprengjuárásin er sú mannskæðasta í Íran í rúman áratug. Fjölmennt var í moskunni sem er í borginni Zahedan í Sistan-Baluchestan héraði sem er við landamærin að Afganistan og Pakistan. Almennur frídagur var í Íran í gær en þá var dauða Famtimu, dóttur Múhameðs spámanns, minnst. Fólk hafði því komið til bæna í moskunni.

Íranskir miðlar segja að um sjálfsvígssprengjuárás hafi verið að ræða en það virðist nokkuð á reyki og jafnvel talið að ódæðismenn hafi komið sprengjum fyrir í moskunni og síðan forðað sér. Yfirvöld í Sistan-Balúkestan héraði við landamærin að Afganistan og Pakistan segja að þrír hafi verið handteknir vegna árásarinnar. Fars fréttastofan íranska hefur eftir embættismanni að staðfest sé að Bandaríkjamenn hafi fengið árásarmennina til að fremja ódæðið.

Fréttaritari BBC í Teheran segir algengt að írönsk yfirvöld kenni Bandaríkjamönnum um ýmis óhæfuverk sem framin séu í landinu. Alls óvíst sé að nokkurn tíman verði upplýst að fullu um ástæður árásarinnar.

Vel gæti verið að hér hafi ótýndir glæpamenn verði að verki en héraðið mun mikilvægt fyrir eiturlyfjasmyglara en vopnaðir hópar þeirra flytja ópíum og heróín í gegn í bílalestum. Þar fyrir utan munu fjölmargir herskáir íslamistar á svæðinu og algengt að til átaka komi við hermenn og liðsmenn öryggissveita lögreglu.

En hvað sem líður því hver ber ábyrgð telja stjórnmálaskýrendur í Íran ljóst að árásin auki á spennu í Íran en forsetakosningar verða í landinu eftir hálfan mánuð. Mahmoud Ahamdinejad, Íransforseti, sækist eftir endurkjöri en þrír aðrir eru einnig í framboði.

Óttast er að fleirir árásir verði gerðar áður en Íranar gangi að kjörborðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×