Segja Bandaríkjamenn standa að baki sprengjuárás í Íran 29. maí 2009 12:26 MYND/AP
Írönsk yfirvöld segja að Bandaríkjamenn hafi staðið að baki sprengjuárás í mosku í suð-austurhluta Írans í gærkvöldi. Minnst nítján féllu í árásinni og um sextíu særðust. Sprengjuárásin er sú mannskæðasta í Íran í rúman áratug. Fjölmennt var í moskunni sem er í borginni Zahedan í Sistan-Baluchestan héraði sem er við landamærin að Afganistan og Pakistan. Almennur frídagur var í Íran í gær en þá var dauða Famtimu, dóttur Múhameðs spámanns, minnst. Fólk hafði því komið til bæna í moskunni. Íranskir miðlar segja að um sjálfsvígssprengjuárás hafi verið að ræða en það virðist nokkuð á reyki og jafnvel talið að ódæðismenn hafi komið sprengjum fyrir í moskunni og síðan forðað sér. Yfirvöld í Sistan-Balúkestan héraði við landamærin að Afganistan og Pakistan segja að þrír hafi verið handteknir vegna árásarinnar. Fars fréttastofan íranska hefur eftir embættismanni að staðfest sé að Bandaríkjamenn hafi fengið árásarmennina til að fremja ódæðið. Fréttaritari BBC í Teheran segir algengt að írönsk yfirvöld kenni Bandaríkjamönnum um ýmis óhæfuverk sem framin séu í landinu. Alls óvíst sé að nokkurn tíman verði upplýst að fullu um ástæður árásarinnar. Vel gæti verið að hér hafi ótýndir glæpamenn verði að verki en héraðið mun mikilvægt fyrir eiturlyfjasmyglara en vopnaðir hópar þeirra flytja ópíum og heróín í gegn í bílalestum. Þar fyrir utan munu fjölmargir herskáir íslamistar á svæðinu og algengt að til átaka komi við hermenn og liðsmenn öryggissveita lögreglu. En hvað sem líður því hver ber ábyrgð telja stjórnmálaskýrendur í Íran ljóst að árásin auki á spennu í Íran en forsetakosningar verða í landinu eftir hálfan mánuð. Mahmoud Ahamdinejad, Íransforseti, sækist eftir endurkjöri en þrír aðrir eru einnig í framboði. Óttast er að fleirir árásir verði gerðar áður en Íranar gangi að kjörborðinu.
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Fleiri fréttir ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Sjá meira