Erlent

Flokkur Gordons Browns í lægstu lægðum

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands og formaður Verkamannaflokksins, ásamt Alistair Darling, fjármálaráðherra.
Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands og formaður Verkamannaflokksins, ásamt Alistair Darling, fjármálaráðherra.
Verkamannaflokkur Gordons Browns, forsætisráðherra Bretlands, mælist nú í lægstu lægðum eftir afhjúpanir breska blaðsins Telegraph síðustu daga um endurgreiðslur af opinberu fé til þingmanna flokksins.

Samkvæmt nýrri könnun sem birt var í sunnudagsútgáfu breska blaðsins Mail í morgun nýtur Verkamannaflokkurinn aðeins 23 prósenta fylgis en Íhaldsflokkurinn nýtur stuðnings 45 prósent Breta. Það myndi tryggja Íhaldsmönnum stórsigur í kosningum.

Fram kemur einnig að 52 prósent Breta telja að Brown ætti að víkja.

Þetta eru verstu niðurstöður í skoðanakönnun fyrir Verkamannaflokkinn síðan 1943. Önnur könnun í sunnudagsútgáfu Times sýnir að Verkamannaflokkurinn er 16 prósentustigum á eftir Íhaldsmönnum með 27 prósenta fylgi. Stjórn Verkamannaflokksins getur í síðasta lagi boðað til kosninga um mitt næsta ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×