Erlent

Dorrit með Rolls Royce í Rússlandi

Dorrit Moussaieff og Simon Robertson stjórnarformaður Rolls Royce í Sankti Pétursborg.
Dorrit Moussaieff og Simon Robertson stjórnarformaður Rolls Royce í Sankti Pétursborg. Mynd/AP

Associated Press fréttastofan hefur birt meðfylgjandi mynd af Dorrit Moussaieff forsetafrú ásamt stjórnarformanni Rolls Royce, þar sem þau eru í Sankti Pétursborg í Rússlandi.

Sagt er frá því að þau Dorrit og Simon Robertson sitji þar fund alþjóðlegrar ráðgjafanefndar ríkislistasafnsins í Sankti Pétursborg.

Í nefndina er valið fólk úr stjórnmálum, listum og viðskiptum.

Hlutverk nefndarinnar er að veita safninu góð ráð um hvernig það geti best komið rússneskri list á framfæri í heiminum og aukið samvinnu og samband við mismunandi menningarheima.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×