Erlent

Harðar loftárásir í Pakistan

Óli Tynes skrifar
Pakistanskar F-16 orrustuþotur.
Pakistanskar F-16 orrustuþotur.

Pakistanskar orrustuþotur gerðu í dag harðar loftárásir á víghreiður talibana í Orkazi héraði. Jafnframt börðust hermenn við talibana á jörðu niðri í stærsta bænum í Swat héraði.

Pakistan hóf í síðasta mánuði sókn gegn talibönum sem höfðu sífellt verið að færa sig upp á skaftið eftir undanlátssemi ríkistjórnarinnar.

Talibanar segja að þrettán liðsmenn þeirra hafi fallið í loftárásunum í dag og hótuðu hefndum. Þeir sögðust geta látið til skarar skríða hvar sem er í landinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×