Erlent

Sameinuðu þjóðirnar rannsaka morðið á Bhutto

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Benazir Bhutto
Benazir Bhutto Mynd/AP

Óháð rannsóknarnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna kemur til með að rannsaka morðið á Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans. Bhutto var vegin í desember árið 2007 í aðdraganda þingkosninga landsins.

Nefndina skipa Heraldo Munoz, sendiherra frá Chile, Marzuki Darusman, fyrrum ríkissaksóknari Indónesíu og Peter Fitzgerald, reyndur írskur lögreglumaður. Nefndin mun starfa að gagnaöflun í hálft ár og skila skýrslu til aðalritara SÞ.

Samkvæmt tilkynningu frá Sameinuðu þjóðunum munu pakistönsk yfirvöld þó áfram bera ábyrgð á að ákvarða sekt þeirra sem frömdu ódæðið.

Bæði pakistönsk yfirvöld og leyniþjónusta Bandaríkjanna telja að forystumaður Talíbana í landinu, Baitullah Mehsud, hafi skipulagt morðið.

Bhutto var forsætisráðherra landsins tvisvar, bæði undir lok níunda áratugar og um miðjan tíunda áratug síðustu aldar. Forseti landsins hrakti hana í útlegð til Bretlands og síðar Dubai eftir að ríkisstjórn hennar var sökuð um spillingarbrot. Bhutto var sakfelld fyrir þessi brot, en síðar var dómnum snúið við. Hún sneri aftur til Pakistans 2007.

Ekkill Bhutto, Asif Ali Zardari, er nú forseti landsins.

Þetta kemur fram á fréttavef CNN.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×