Færri féllu í Pakistan en í fyrstu var talið 30. mars 2009 20:42 Lögreglan handtekur einn af árásarmönnunum. MYND/AP
Blóðbað varð í lögregluskóla í Lahore í Pakistan í dag. Íslamistar gráir fyrir járnum réðust þar inn vopnaðir byssum og sprengjum. Pakistönsk yfirvöld segja Talíbana hafa verið að verki. Í fyrstu var talið að tugir hefðu fallið en pakistönsk yfirvöld segja að fjórtán hafi fallið. Árásin vekur spurningar um stöðugleika í kjarnorkuveldinu Pakistan. Um níu hundruð nemendur voru á skólasvæðinu við upphaf morgunæfinga þegar andspyrnuhópurinn réðst þangað inn úr fjórum áttum. Þeir vörpuðu handsprengjum inn á svæðið að sögn vitna og hófu síðan skothríð. Einhverjir þeirra munu hafa verið dulbúnir sem lögreglumenn. Sérsveitarmenn voru þegar sendir á vettvang og umsátursástand skapaðist. Það varði í um átta klukkustundir eða allt þar til sérsveitarmenn létu til skarar skríða og mikil skotbardagi hófst sem stóð í nærri stundarfjórðung. Meðan herlið réðst inn var herþyrlum flogið lágt yfir skólasvæðið og skotið úr þeim beint inn í skólabyggingar. Loks var búið að yfirbuga árásarmennina. Í fyrstu var talið að tugir hefðu fallið en pakistönsk yfirvöld segja fjórtán. Átta lögreglumenn, tveir almennir borgarar og fjórir árásarmenn. Áttatíu og níu hafi særst. Þrír úr árásarhópnum voru handteknir. Árásin í dag, önnur í borginni á innan við mánuði, eykur enn á óróa í kjarnorkuveldinu Pakistan. Sérfræðingar segja Íslamista há há ofbeldisfulla baráttu við borgaralega stjórn landsins sem þeir vilji koma frá vegna þess hve hún halli sér að vesturveldunum með stuðningi við aðgerðir gegn Talíbönum og Al Kaída í Afganistan.
Mest lesið Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Innlent Fleiri fréttir Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Seinfeld og Friends-leikari látinn Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Sjá meira