Pólskt elliheimili leigir út ömmur Atli Steinn Guðmundsson skrifar 31. mars 2009 08:12 Leigðar ömmur bjarga heilu fjölskyldunum í Póllandi.
Hver þekkir ekki hið gamalgróna siferðislega og uppeldislega hlutverk ömmunnar og allt það ótalmarga sem ömmur hafa kennt hinum mætustu mönnum í áranna rás? Pólskt elliheimili í bænum Silesia kemur nú til móts við þá, sem af einhverjum ástæðum áttu ekki kost á ömmuuppeldinu, og leigir þeim einfaldlega ömmu gegn vægu gjaldi. Leiguömmurnar eru að sjálfsögðu vistmenn á heimilinu og telja sig ekki hafa neitt betra að gera en að sinna hinu hefðbundna ömmuhlutverki áfram þrátt fyrir að vera búnar að skila sínu til eigin fjölskyldu. Reuters-fréttastofan greinir frá einu dæmi þar sem foreldrar 10 ára stúlku leigja eitt stykki ömmu til að eyða deginum með dótturinni en þau vinna bæði utan heimilisins og eiga erfitt með að hugsa sér að enginn sinni afkvæminu á meðan. Þetta hefur gefist stórvel, amman hjálpar þeirri stuttu með heimanámið og styður hana með ráðum og dáð. Tengslin eru orðin svo náin að leiguamman er eiginlega orðin hluti af fjölskyldunni og fer til dæmis með henni í frí. Ömmunum er svo hægt að skila aftur á elliheimilið þegar þær hafa lokið hlutverki sínu í útleigunni.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Sjá meira