Sálfræðingur ráðleggur fólki um veðskuldir Atli Steinn Guðmundsson skrifar 16. apríl 2009 08:11 Hluti af bókarkápunni.
Bandarískur sálfræðingur hefur skrifað bók til hjálpar fólki sem er að missa heimili sín vegna veðskulda. Iris Martin er hvorki bankastarfsmaður, fasteignasali né veðbraskari. Hún er hins vegar sálfræðingur með svokallaða ummyndunarsálfræði að sérgrein. Martin starfaði í Hvíta húsinu þegar Bill Clinton var forseti Bandaríkjanna og átti meðal annars sæti í fjárlaganefnd Pennsylvania-ríkis. Þegar húsnæðiskreppan skall af fullum þunga á Bandaríkjamönnum í fyrra og lánardrottnar tóku að bera fasteignaeigendur út af heimilum sínum fór Martin að kynna sér málin og skrifaði upp úr því bókina Veðstríðin, The Mortgage Wars. Þar ráðleggur hún fólki að standa fast á sínu og berjast, þess séu dæmi að húsnæðiseigendur hafi farið með mál sín fyrir dómstóla og unnið heimili sitt aftur þar. Martin gagnrýnir hve lítið sé rætt um þann tilfinningalega skaða sem fylgi því að glata heimili sínu. Sálfræðilega gangi það næst hjónaskilnaði og geti beygt þann sem fyrir verður verulega mikið andlega. Martin bendir á að töluvert sé um að veðlán séu svokölluð varglán, eða „predatory lending", þar sem lánveitandi hefur ekki staðið rétt að láninu. Slíku veði megi fá hnekkt fyrir dómi þótt það sé reyndar hvergi skilgreint í bandarískum lögum hvers konar lán teljist varglán. Aðalatriðið sé þó að hafa það í huga að lífinu er ekki lokið þótt húsnæðið sé farið og hjá mörgum geti það hreinlega táknað nýtt upphaf.
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira