Erlent

Mexíkóar segjast ekki hafa leynt svínaflensunni

Jose Angel Cordova
Jose Angel Cordova
Heilbrigðisráðherra Mexíkó neitar ásökunum Fídel Castro um að yfirvöld þar í landi hafi vísvitandi sleppt því að segja frá tilvist svínaflensunnar í síðasta mánuði. Jose Angel Cordova heilbrigðisráðherra segir að yfirvöld þar í landi hafi verið óvenjulega opinská og haft frumvkvæði að því að tilkynna um faraldurinn.

Hann segir yfirvöld hafa gert allt sem þau hafa getað til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu veirunnar. Ásakanir Castros komu eftir að fyrsta svínaflensutilfellið uppgötvaðist á Kúbu, en þetta er talið geta haft slæm áhrif á samskipti þjóðanna.

Kúba lokaði fyrir öll flug til og frá Mexíkó þegar ljóst var að veiran væri að breiðast út um heiminn. Yfirvöld í Mexíkó hafa staðfest að 58 einstaklingar hafi látist af völdum veirunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×