Erlent

Hörð viðbrögð um allan heim vegna kjarnorkusprengingar

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri SÞ.
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri SÞ. MYND/AP

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdi einróma kjarnorkusprengingu Norður-Kóreumanna í gær á neyðarfundi í New York í gærkvöldi. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði sprenginguna klárt brot á samkomulagi sem gert var árið 2006 eftir tilraunasprenginguna þá.

Norður-Kóreumenn höfðu hótað annarri kjarnorkutilraun eftir að öryggisráðið herti efnahagslegar refsiaðgerðir gegn þeim í kjölfar tilraunaeldflaugaskots í apríl sem Norður-Kóreumenn héldu statt og stöðugt fram að hefði verið gervihnattarskot.

Barack Obama Bandaríkjaforseti segir sprenginguna í gær grafalvarlegt mál og hreina ögrun við alþjóðasamfélagið. Embættismenn í Washington og Peking segja Norður-Kóreumenn hafa látið vita af sprengingunni með klukkustundar fyrirvara en Japanar segjast enga slíka viðvörun hafa fengið. Jarðskjálfti i kjölfar sprengingarinnar mældist 5,3 stig á Richter.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×