Ökumenn í New York eru allra verstir Atli Steinn Guðmundsson skrifar 16. júní 2009 08:30 Þessi mynd af götu í New York virðist styðja niðurstöðu könnunarinnar fullkomlega.
Ökumenn í New York hafa steypt ökumönnum í Miami úr toppsætinu yfir skapverstu ökumenn Bandaríkjanna. Sú sérstaka könnun sem nær til erfiðustu og skapverstu bílstjóra Bandaríkjanna og er framkvæmd í 25 stórborgum þar kom út núna í morgun. Síðastliðin fjögur ár hafa bílstjórar Miami vermt toppsætið með nokkrum yfirburðum en nú varð breyting þar á. New York hirti sætið með glæsibrag og nú teljast ökumenn þar í borg allra ökumanna líklegastir til að steyta hnefann í átt að samborgurum sínum í umferðinni, flauta eða hleypa flaumi fúkyrða yfir manninn í næsta bíl. Það er markaðs- og ráðgjafarfyrirtækið Affinion Group sem heldur utan um könnunina en engin takmörk virðast fyrir því hvað Bandaríkjamönnum dettur í hug að taka fyrir í könnunum sínum. Dallas í Texas fylgir fast á hæla New York en þar teljast næstdjöfullegustu bílstjórarnir og Atlanta og Minneapolis koma þar á eftir. Miami er sem sagt búin að bæta umferðarmenningu sína það mikið að þeir ná ekki einu sinni topp fimm á þessum sérstaka lista. Aðstandendum könnunarinnar kom það helst á óvart að engin landfræðileg rök virðast ná yfir hegðun ökumanna, staðsetning þeirra verstu og bestu er í besta falli tilviljunarkennd. Að lokum má geta þess að sú háttsemi í umferðinni sem pirrar hinn almenna borgara mest er þegar ökumaðurinn situr og malar í símann í umferðinni - án handfrjáls búnaðar. Kannski eitthvað sem við Frónbúar ættum að hugsa út í annað slagið.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Sjá meira