Erlent

Aukið atvinnuleysi innan ESB

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Atvinnuleysi jókst umtalsvert innan Evrópusambandsins á fyrsta fjórðungi ársins, eða um 1,2 prósent miðað við fyrsta fjórðung ársins 2008. Þetta kemur fram í gögnum evrópsku tölfræðistofnunarinnar sem birt voru í gær. Mest er atvinnuleysið á Spáni en þar er það komið upp undir 20 prósent. Ástandið er þannig hjá meira en milljón spænskum fjölskyldum að allir á heimilinu, sem ættu að vera eða gætu verið á vinnumarkaði, eru atvinnulausir. Þá jókst atvinnuleysi einnig í Þýskalandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×