Átökin magnast á Gaza 6. janúar 2009 12:09 Mynd/AP
Átök Ísraela og Palestínumanna á Gaza hafa magnast síðasta sólahringinn. Þrír ísraelskir hermenn féllu þegar landar þeirra skutu fyrir mistök á þá úr skriðdreka. Þrír Palestínumenn féllu þegar skotið var á skóla Sameinuðu þjóðanna í Gazaborg í morgun. Þar höfðu margir leitað skjóls frá vopnum Ísraela. Þrír ísraelskir hermenn féllu og tuttugu særðust þegar skotið var fyrir mistök úr ísraelskum skriðdreka á hús á norðurhluta Gaza-svæðisins sem hermennirnir voru í. Fjórir þeirra sem særðust munu þungt haldnir. Tveir ísrelskir hermenn til viðbótar hafa fallið í átökum síðan aðgerðir Ísraela á Gaza hófust fyrir ellefu dögum. Palestínumenn segja hundrað og tíu hafa fallið frá upphafi landhernaðar Ísraela fyrir þremur dögum til viðbótar þeim nærri fimm hundruð sem féllu í loftárásum áður. Ísraelar segjast hafa fell hundrað og þrjátíu liðsmenn Hamas-samtakanna í bardögum síðan innrás hófst á laugardagskvöldið. Þrír Palestínumenn féllu þegar skotið var úr skriðdreka á skóla á vegum Sameinuðu þjóðanna í Gazaborg í morgun. Palestínumenn hafa leitað skjóls í slíkum skólum á svæðinu og reynt þannig að forða sér frá árásum Ísraela. Bardagarnir á Gaza hafa harnað síðasta sólahring og nú mun sótt gegn enn frekari skotmörkum í Gazaborg. Ísraelsher hefur og einnig í Khan Younis í suðurhluta Gaza þar sem eru stórar flóttamannabúðir. Krafa alþjóðasamfélagsins um vopnahlé verður háværari með hverjum deginum sem líkur. Ísraelar ljá ekki máls á slíku og forvígismenn Hamas ekki heldur. Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna og leiðtogi Fatha-hreyfingar Palestínumanna, kemur til fundar í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna síðar í dag til að ræða stöðuna á Gaza. Þann fund sækja einnig utanríkisráðherrar Sádí Arabíu, Egyptalands, Frakklands og Bretlands. Þrýst verður á ráðið að grípa til aðgerða. Nicolas Sarkozy, Frakklandsforseti, bað í morgun ráðamenn í Sýrlandi að blanda sér í deiluna og beita áhrifum sínum til að fá Hamas-samtökin til samvinnu við alþjóðasamfélagið svo binda mætti enda á árásir Ísraela. Sarkozy sagðist sannfærður um að Sýrlendingum myndi takast að fá leiðtoga Hamas til að ganga að nýju samkomulagi.
Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira